Bæjarstjórn Fjallabyggðar hefur skorað á Innviðaráðherra og þingmenn Norðausturkjördæmis í ljósi nýafstaðinna atburða í kjölfar mikillar úrkomu við utanverðan Tröllaskaga að beita sér þegar í stað fyrir því að undirbúningi Fljótaganga verði hraðað.
Mikið hættuástand skapaðist á Siglufjarðarvegi eftir atburði síðustu daga, sem sýnir að um forgangsmál er að ræða þegar kemur að samgöngu- og öryggismálum landsins.
Myndir: Halldór Gunnar Hálfdansson. Birtar með góðfúsu leyfi hans.




