Bæjarfulltrúar úr bæjarstjórn Akureyrarbæjar komu í vináttuheimsókn til Fjallabyggð í lok síðustu viku og hittu fulltrúa úr bæjarstjórn Fjallabyggðar.

Heimsóknin var óformleg en bæjarfulltrúarnir ræddu meðal annars málefni sveitarfélaganna og málefni sem landshlutinn þarf að beita sér fyrir í hagsmunagæslu fyrir íbúa svæðisins.

Fundir sem þessir styrkja tengsl á milli Fjallabyggðar og Akureyrarbæjar og betra samtals í framtíðinni um ýmis málefni.