Sunnudaginn 2. apríl kl. 15:30 verður bæjarlistamaður Fjallabyggðar, Arnfinna Björnsdóttir með erindi á fyrirlestraröðinni Sunnudagskaffi með skapandi fólki á Alþýðuhúsinu á Siglufirði.  Í sunnudagskaffinu ræðir Abbý um feril sinn og þau verk sem hún hefur unnið í gegnum tíðina, allar götur frá 1956. Sýndar verða myndir af verkum og gestum boðið til samsætis og kaffiveitinga. 

Arnfinna eða Abbý eins og hún er ávalt kölluð er fædd á Siglufirði 1942. Hún stundaði nám við Verslunarskólann í Reykjavík og vann síðan í 37 ár sem launafulltrúi og hafnargjaldkeri hjá Siglufjarðarkaupstað. Samhliða vinnunni lagði hún stund á myndlist og handverk og var við listnám hjá Örlygi Kristfinnssyni á Sglufirði veturna 1989 – 1991. Einnig tók hún stutt námskeið hjá Aðalheiði S. Eysteinsdóttur 1996 og 1997.
Abbý hefur rekið vinnustofu og sýningarrými á Siglufirði til fjölda ára og opnar árlega dyr sínar 20. maí með eigin sýningu sem stendur til 20. sept. Hún hefur vakið töluverða athygli fyrir klippimyndir sínar, þar sem síldarárin á Siglufirði eru umfjöllunarefnið.
Einnig hefur hún tekið þátt í samsýningum á Akureyri, Hjalteyri og í Ólafsfirði. Í ár mun Abbý setja upp fjórar sýningar í tilefni af bæjarlistamanns titlinum og 75 ára afmæli sínu.