Tennis og Badmintonfélag Siglufjarðar og þjálfarinn Daan Boelsma ætla að halda áfram að bjóða upp námskeið fyrir fullorðna á þriðjudögum kl. 18:30-19:45 í íþróttahúsinu á Siglufirði. Þetta eru í heildina átta þriðjudagar (07.apríl., 14.apríl, 21.apríl, 28.apríl, 05.maí, 12.maí, 19.maí og 26.maí).
Hægt er að kaupa annað hvort fjóra tíma á 9.000 kr eða alla átta tímana á 15.000 kr.
Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt hafi samband við þjálfarann Daan (daanb96@hotmail.com).