Varnarmaðurinn Auðun Gauti Auðunsson hefur samið við Þrótt Vogum sem leikur í 2. deildinni, en hann lék allt síðasta tímabil með Knattspyrnufélagi Fjallabyggðar. Hann lék einnig með KF árið 2022. Auðun hefur einnig leikið með Haukum en lék upp yngri flokkana með FH. Auðun lék 38 leiki fyrir KF í deild og bikarkeppnum og skoraði tvö mörk.