Ástarpungarnir verða með tónleika og fyrir börnin á Ljóðasetri Íslands á Siglufirði, fimmtudaginn 11. ágúst kl. 16.00 sem hluti af verkefninu Barnamenning á Ljóðasetri sem staðið hefur yfir í sumar.
Hljómsveitin hefur getið sér gott orð síðustu ár og mun leika ýmis lög sem henta yngri hlustendum og það verður örugglega hægt að syngja með.
Enginn aðgangseyrir er að tónleikunum og safninu.
Tónleikarnir eru styrktir af Barnamenningarsjóði.