Í ljósi mikils álags á þyrlusveit Landhelgisgæslunnar undanfarin misseri tekur bæjarráð Fjallabyggðar undir tillögu til þingsályktunar um fasta starfsstöð þyrlu Landhelgisgæslu Íslands á Akureyri og jákvæða umsögn Landhelgisgæslunnar um málið.
Í umsögn Landhelgisgæslunnar kemur fram að föst viðvera þyrlusveitarinnar á Akureyri yrði bylting í björgunar-, sjúkraflugs- og eftirlitsgetu. Með henni væri unnt að ná til allra landshluta innan 90 mínútna á hefðbundnum degi og efla verulega viðbragð á norður- og austurmiðum og hálendinu. Landhelgisgæslan hafði fulla viðbragðsgetu aðeins 61% ársins 2025 og telur óskynsamlegt að flytja eina núverandi þyrlu til Akureyrar án þess að fjölga þyrlum og áhöfnum.
Bæjarráð skorar á ríkisstjórn og Alþingi að leggja við næstu fjárlagagerð fram tímasetta og fjármagnaða áætlun um fjórðu björgunarþyrluna, sjöundu þyrluáhöfnina og nauðsynlega aðstöðu á Akureyri. Jafnframt verði hafið árs tilraunaverkefni í samræmi við tillögu Landhelgisgæslunnar, með fasta starfsstöð að markmiði.
Allir landsmenn eiga að njóta sambærilegs öryggis og viðbragðsgetu, óháð búsetu.
Texti: Aðsend fréttatilkynning.