Árleg handverkssýning félagsstarfs eldri borgara í Dalvíkurbyggð verður á Dalbæ laugardaginn 24. maí, sunnudaginn 25. maí og mánudaginn 26. maí kl. 13:00-17:00 alla dagana.

Sýningin er öllum opin og ókeypis.

Kaffisala til ágóða fyrir félagsstarfið verður á sunnudeginum 25. maí frá kl. 13-17.