Lögreglunni á Norðurlandi vestra, bárust boð um að Sauðá á Sauðárkróki, væri hætt að renna að mestu leyti. Talið er að krapastífla hafi myndast í henni og eru nú meðlimir björgunarsveita að staðsetja stífluna. Lögreglan biðlar til fólks að vera ekki á ferð við Sauðánna og alls ekki í Litla-skógi né leiksvæði Árskóla, einnig að vera ekki á ferð vestan við verknámshús Fjölbrautaskólans á Sauðárkróki.
Tekin hefur verið ákvörðun um að loka gatnamótum Skagfirðingabrautar / Hegrabrautar / Sæmundarhlíðar. Íbúar eru beðnir um að vera ekki á ferðinni á þessu svæði þar til málið skýrist nánar.
Myndlýsing ekki til staðar.