Ákveðið hefur verið að bjóða árgangi 1998 í Fjallabyggð að mæta einni viku fyrr í vinnuskóla.
Þeir sem hafa skráð sig í vinnuskóla Fjallabyggðar fæddir 1998 gefst tækifæri á að mæta einni viku fyrr og vinna eftir hádegi vikuna 24.-28. júní.
Ekki er þörf á skráningu sérstaklega, heldur nægir að mæta til vinnu mánudaginn 24. júní við þjónustumiðstöð/ áhaldahús.
1. júlí hefst svo þeirra tímabil og fá þau þá vinnu allan daginn til a.m.k 2. ágúst.
Gísli Rúnar Gylfason
Íþrótta- og tómstundafulltrúi
www.fjallabyggd.is