Ljóst var snemma í haust að færa þyrfti áramótabrennu Akureyringa vegna breyttra aðstæðna og framkvæmda á svæðinu við Réttarhvamm. Ýmsir möguleikar voru skoðaðir en loks ákveðið að brennan verði á auðu og óbyggðu svæði á Jaðri nokkru sunnan við golfskálann. Kveikt verður í myndarlegri brennu á þessum stað kl. 20.30 á gamlárskvöld.

Á meðfylgjandi loftmynd má sjá brennustæðið, svæði þar sem leggja má bifreiðum og gönguleiðir að brennunni.

Árleg flugeldasýning á gamlárskvöld verður á sínum stað skammt frá höfuðstöðvum Norðurorku og hefst hún um kl. 21.00.

Það er Björgunarsveitin Súlur sem sér um sýninguna en hún er í boði Norðurorku.