Loksins kom snjór á skíðasvæðið á Siglufirði og fyrsta opnunarhelgi tímabilsins var um síðustu helgi. Töfrateppið var á sínum stað og fjölskyldur streymdu í fjallið til að eiga gæðastund. Vegna hita á svæðinu þá er lokað í dag en starfsmenn svæðisins eru að vinna að því að koma snjó yfir allt svæðið og verður næsta opnun auglýst á vef Skíðasvæðisins í Skarðsdal.

