Alvarlegt umferðarslys varð á Norðausturvegi skammt frá bænum Hóli í Kelduhverfi laust fyrir kl. 16:00 í dag. Árekstur varð með vörubíl og fólksbíl. Tveir slasaðir aðilar voru fluttir af vettvangi.
Þyrla Landhelgisgæslunnar flutti annan aðilann til aðhlynningar á Sjúkrahúsinu á Akureyri en hinn var fluttur með sjúkraflugi frá Húsavík til aðhlynningar á Landspítalanum í Reykjavík.
Norðausturvegur er enn lokaður vegna vettvangsvinnu en hjáleið er opin.