Alþjóðlegur dagur gegn einelti á fimmtudaginn

Eineltisteymi starfsmanna Dalvíkurbyggðar vill vekja athygli á því að á fimmtudaginn 8. nóvember er alþjóðlegur dagur gegn einelti.
Á vefnum www.gegneinelti.is  er fólk um allan heim hvatt til að sýna samstöðu í baráttunni gegn einelti með því að hringja alls konar bjöllum kl. 13:00 samfellt í sjö mínútur, eina mínútu fyrir hvern dag vikunnar.  Í Dalvíkurbyggð verður hringt skólabjöllum og kirkjuklukkur Dalvíkurkirkju munu einnig hringja á sama tíma.