Sunnudaginn 19. janúar næstkomandi verður alþjóðlegi World snow day eða Snjór um víða veröld haldinn í Tindastól og á öllum öðrum skíðasvæðum landsins.

Í tilefni dagsins verður boðið uppá ýmsar uppákomur á hverju svæði en í Tindastól verður eftirfarandi:

  • Allir krakkar 12 ára og yngri fá frítt í brekkurnar
  • 20% afsláttur verður veittur af allri skíðaleigu í Tindastól
  • Skíðadeildin bíður uppá gönguskíðakennslu kl 12-14
  • Frítt kakó fyrir 12 ára og yngri.
  • Snjóþotubraut.