Verkefnið Göngum í skólann 2024 var sett hátíðlega í Brekkuskóla á Akureyri í dag, en þetta er í átjánda sinn sem verkefnið er sett hér á landi. Verkefninu er ætlað að hvetja nemendur, foreldra og starfsmenn skóla til að ganga, hjóla, fara á línuskautum eða á annan virkan hátt til og frá skóla.
Eldri borgarar á Akureyri létu ekki sitt eftir liggja í morgun því sjálfborðaliðar úr röðum Virkra efri ára og EBAK mönnuðu gatnamót og gangbrautir í kringum grunnskóla Akureyrar og aðstoðuðu börnin yfir götur. Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri Akureyrar, tók einnig þátt og spjallaði í leiðinni við krakkana. Að setningu lokinni var verkefnið ræst þar sem nemendur, starfsfólk og gestir gengu stuttan hring í nærumhverfi skólans.
Árlega taka milljónir barna þátt í Göngum í skólann verkefninu í yfir fjörutíu löndum víðs vegar um heim. Allir grunnskólar Akureyrarbæjar taka þátt í verkefninu.
Bakhjarlar Göngum í skólann verkefnisins eru Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Samgöngustofa, Ríkislögreglustjóri, mennta- og barnamálaráðuneytið, Slysavarnafélagið Landsbjörg, Embætti landlæknis og landssamtökin Heimili og skóli.
Heimild : Akureyri.is