Akil DeFreitas sem leikið hefur fyrir Knattspyrnufélag Fjallabyggðar síðustu tvö tímabil og einnig þjálfað yngri flokka,  hefur samið við Völsung á Húsavík og er þar yngri flokka þjálfari. Þá mun hann líklega einnig spila fyrir meistaraflokkinn. Akil er fluttur á Húsavík og býr skammt frá knattspyrnuvellinum og er því stutt í vinnuna. Hann hefur verið þjálfari 7. flokks karla og kvenna, 5. flokks karla og 3. flokk karla síðan í haust.

Akil lék síðast fyrir Völsung árið 2019, en hann kom fyrst til Íslands og lék með Sindra á Hornafirði árið 2017. Hann hefur leikið 142 leiki á Íslandi og skorað 37 mörk.

Hjá KF lék hann 39 leiki og skoraði 5 mörk í deild og bikar í þessi tvö tímabil sem hann var.

Akil var í viðtali hér á vefnum eftir sitt fyrsta tímabil hjá KF.