Afmælismót Golfklúbbs Siglufjarðar var haldið á Jónsmessu á Hólsvelli, laugardaginn 21. júní síðastliðinn. Mótið var punktakeppni og var haldið fyrir fullorðna. Tuttugu og tveir voru skráðir til leiks en sigurvegari mótsins var Björn Steinar Stefánsson úr GKG 18 punkta. Runólfur Birgisson úr GKS var í öðru sæti með 17 punkta og Þorsteinn Jóhannesson var í þriðja sæti með 15 punkta.