Aflraunakeppnin Víkingurinn 2026 kemur í fyrsta sinn til Fjallabyggðar með tvær spennandi keppnisgreinar föstudaginn 24. júlí næstkomandi.

Fyrri greinin, Mylluganga, fer fram við menningarhúsið Tjarnarborg í Ólafsfirði kl. 14:00.  Seinni greinin, Drumbalyfta, hefst við Kaffi Rauðku á Siglufirði kl. 16:00.

Keppnin verður sannkölluð kraftasýning og eru íbúar og gestir hvattir til að mæta á svæðið og fylgjast með.

Frítt er fyrir áhorfendur. Keppendur verða svo á Blönduósi laugardaginn 25. júlí kl. 11:00.