Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar hefur samþykkt að veita fyrirtækinu Siglufjörður Adventure eða Hálendi Íslands ehf, leyfi til þess að fara með ferðamenn í lítilli rútu upp í Hvanneyrarskál um veginn sem liggur ofan Siglufjarðar. Vegna yfirstandandi framkvæmda í Hafnarfjalli við gerð stoðvirkja yrði haft samráð við framkvæmdaraðilann og ekki farið í þessar ferðir nema með samþykki hans.
Var það Jón Hrólfur Baldursson rakari og ljósmyndari á Siglufirði sem sótti um leyfin fyrir hönd fyrirtækjanna.