Kvennalið Blakfélags Fjallabyggðar lék gegn Þrótti frá Neskaupsstað í morgun á Íslandsmótinu í 3. deild kvenna. Húsmæðurnar frá Neskaupsstað voru harðar í horn að taka en mikil blakhefð hefur verið þar á bæ í áratugi. Liðin skiptust á að ná forystu í fyrstu hrinunni en BF átti góðan kafla og komst í 7-12 og tóku þá Þróttarar leikhlé. BF komst í 10-15 en Þróttarar komust inn í leikinn og jöfnuðu 15-15 og komust í 19-15 eftir góðar sóknir og slæma móttöku hjá BF.
BF minnkaði muninn í 21-20 og voru æsispennandi lokamínútur og hver mistök dýr. Jafnt var í 24-24 og 25-25. Hrinan fór því í upphækkun. Þróttarar tóku síðustu tvö stigin eftir langar sóknir og unnu hrinuna.
Þróttarar byrjuðu af krafti og komust í 5-0 í annarri hrinu. Lítið gekk í móttökunni hjá BF á þessum kafla og var staðan fljótlega 11-2. Þær náðu nokkrum ásum og fóru uppgjafir beint í gólfið og vantaði stundum aðeins betri staðsetningu í lágvörninni hjá BF. Staðan var 16-4 og ljóst í hvað stefndi en BF náði inn nokkrum stigum með góðum sóknum. Staðan 20-8 og 22-12 en BF náði ekki að ógna Þrótti í seinni hrinunni og unnu þær nokkuð þægilega 25-13 og leikinn 2-0.