Framkvæmdanefnd Fjallabyggðar hefur samþykkt að færa ærslabelginn við Blöndalslóðina yfir á nýtt svæði við Vallarbraut. Þar er gert ráð fyrir leiksvæði og útivistarsvæði sem þarf að þökuleggja og sá grasi í svæðið og setja upp fótboltamörk. Reiknað er með að kostnaður verði um 4 milljónir fyrir þessa framkvæmd.
Ein tillaga sem unnið var með var að setja 70 metra girðingu við Blöndalslóðina og setja upp drykkjarbrunn innan girðingar þar og stæði reiðhjól. Var áætlaður kostnaður við þetta 1 milljón króna.
Framkvæmdanefnd Fjallabyggðar tók málið fyrir á fundi 15.apríl síðastliðinn þegar þessar tillögur voru bornar saman.