Rauði krossinn heldur stóra æfingu í opnun fjöldahjálparstöðva í rafmagnsleysi um allt land, laugardaginn 3. október. Æfing verður í Menntaskólanum á Tröllaskaga í Ólafsfirði.
Öll eru velkomin á æfingasvæðið til að kynna sér starfsemi Rauða krossins í sinni heimabyggð.

Æfingin er kölluð Skjól 26. Hugmyndin er sú að það verði rafmagnslaust um land allt en í þeim aðstæðum er mikilvægt að Rauði krossinn bregðist við.

Markmiðið er að æfa opnun fjöldahjálparstöðvar, þétta hópinn, og þannig tryggja að við getum sinnt hlutverki okkar í almannavarnakerfinu með sóma. Auk þess er þetta kjörin leið til að fjölga sjálfboðaliðum og til þess að kynna starfið.

Í aðdraganda æfingarinnar verður boðið upp á fjölbreytta og skemmtilega fræðslu.

Hægt er að skrá sig á viðburðinn í Ólafsfirði hér.