Ljósmynd: Magnús Rúnar Magnússon

Undanfarna sólarhringa hafa þúsundir svikasímtala borist til símnotenda hér landi.

Símanúmerin sem birtast á símum notenda bera með sér að þau komi frá Lúxemborg og Sri Lanka. Númerin sem um ræðir byrja á +352 og +94. Þar sem hér er um svikasímtöl að ræða, framkvæmd með upphringivélum, geta símanúmerin verið skálduð og algjörlega ótengd þessum löndum.

Tilgangur þeirra sem standa fyrir þessum svikasímtölum er að fá notendur til að svara eða hringja til baka í það númer sem birtist þegar hringt var. Ef notendur hringja til baka myndast greiðsluskylda fyrir símtalið og sá möguleiki fyrir hendi að þeir sem standa að baki svikunum nái til sín fjármunum. Ef símtalinu er svarað gætu notendur lent í annars konar svikum.

Vegna þessa mikla fjölda svikasímtala sem borist hafa núna í febrúar hafa íslensk fjarskiptafyrirtæki brugðist við til að verja notendur sína fyrir svikunum eins og hægt er, en erfitt getur reynst að tryggja það fullkomlega að slík símtöl berist ekki til notenda.

Fjarskiptastofa vill koma því á framfæri við símnotendur að svara aldrei símtölum sem þeim berast úr númerum sem þeir kannast ekki við né hringja til baka í slík númer.

Notendum er bent á að kanna nánar hverjum hið óþekkta númer gæti tilheyrt, ef þeir velta fyrir sér að hringja til baka t.d. með því að hafa samband við símafyrirtæki sitt.

Þá bendir Fjarskiptastofa á að aðgæsla símnotenda er helsta vopnið gegn þessari svikastarfsemi.