Núna liggja dagsetningar fyrir aðventuviðburðina í Fjallabyggð í ár.  Ljósin verða tendruð á jólatrénu á Ráðhústorginu á Siglufirði sunnudaginn 30. nóvember og við menningarhúsið Tjarnarborg í Ólafsfirði föstudaginn 5. desember.

Hinn árlegi jólamarkaður Tjarnarborgar í Ólafsfirði verður haldinn föstudaginn 5. desember.  Söluaðilar geta pantað jólahús fyrir þann viðburð.

Kveikt verður á jólatréinu við Tjarnarborg í Ólafsfirði 5. desember  kl. 19:30 og þegar þeirri athöfn er lokið þá hefst jólakvöldið með jólamarkaði í Tjarnarborg, í litlu jólahúsunum og víðar í miðbænum.