Við Síldarminjasafnið
Heimsfaraldur kórónaveiru hafði mikil áhrif á rekstur og starfsemi Síldarminjasafnsins á Siglufirði á líðandi ári.
Samkomutakmarkanir urðu þess valdandi að safnið var lokað gestum í rúmar sex vikur á vormánuðum og aftur í rúmar átta vikur í árslok. Skipulagðar heimsóknir ferðafólks í hópum þurrkuðust nær út og safngestir hafa ekki verið færri í áratug, eða frá því áður en Héðinsfjarðargöng komu til sögunnar.
Tæplega 12.000 gestir sóttu safnið heim á árinu og voru erlendir ferðamenn um 27%.
Til samanburðar voru gestir ársins á undan 26.000 talsins og erlendir ferðamenn 72%.
Þá heimsóttu tæplega 600 nemendur á öllum skólastigum Síldarminjasafnið í skipulögðum námsheimsóknum og íbúar Fjallabyggðar eru jafnframt tíðir gestir á safninu og voru um 330 á árinu.
Skipulagðar leiðsagnir um safnið voru 63 á árinu, samanborið við 355 á árinu áður.
Þrátt fyrir að árið hafi verið verulega krefjandi að flestu leyti hefur það jafnframt verið lærdómsríkt og viðburðaríkt.
Starfsfólk Síldarminjasafnsins hefur tekist á við fjölbreytt verkefni og sinnt faglegu starfi af miklum móð.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Síldarminjasafni Íslands.