Abbi – ljóðamyndir frá liðinni tíð á Siglufirði – útgáfuhóf í Ljóðasetrinu
Siglfirðingurinn Albert Einarsson hefur sent frá sér ljóðabók um uppvaxtarárin á Siglufirði. Útgáfuhóf og kynning verður á Ljóðasetrinu föstudaginn 2. júlí kl. 16.00.
Bókin er prýdd fjölda gamalla mynda frá Siglufirði.
Höfundur mun kynna bókina og lesa úr henni á Ljóðasetrinu á föstudaginn, Þórarinn Hannesson mun leika nokkur lög við ljóð Siglfirðinga og boðið verður upp á léttar veitingar.
Bókin kostar 2.000 kr. og er til sölu á Ljóðasetri Íslands á Siglufirði og rennur kaupverðið óskipt til starfsemi setursins.
