Áfram var mikill erill hjá Lögreglunni á Norðurlandi eystra síðastliðinn sólarhring og margt um manninn á Akureyri, mikill fjöldi gesta sótti sparitónleika hátíðarinnar Einnar með öllu á Akureyrarvelli í gærkvöldi. Langflestir skemmtu sér vel og nutu dagskrárinnar.
Alls eru 86 mál skráð í kerfi lögreglu þennan sólarhring. Engin mál eru skráð hjá lögreglu á Siglufirði vegna fjölskylduhátíðarinnar Síldarævintýris.
Fimm einstaklingar gistu í fangaklefa á Akureyri, tveir vegna heimilisofbeldis, tveir vegna ölvunar og vímuástands og einn vegna grófrar líkamsárásar og er það mál til rannsóknar.
Sjö mál komu upp þar sem afskipti voru höfð af börnum vegna ástands, barnavernd og foreldrar upplýst.
Sextán umferðarlagabrot eru skráð hjá Lögreglu síðastliðinn sólarhring og fimm þeirra vegna aksturs undir áhrifum áfengis.
Tvö umferðaslys eru skráð og bæði þeirra vegna falls af hlaupahjóli, hvorugur aðilinn alvarlega slasaður en annar þeirra grunaður um að hafa stýrt hjólinu undir áhrifum vímugjafa, báðir voru þeir fluttir undir læknishendur til skoðunar.
Eitt fíkniefnamál kom upp þar sem grunur er um sölu og dreifingu fíkniefna og nokkuð magn fíkniefna haldlagt, málið er áfram til rannsóknar.
Nokkuð var um ryskingar og ólæti sem og þurfti að aðstoða allmarga vegna ölvunar og vímuástands.