Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra var slitið í 38. sinn við hátíðlega athöfn í íþróttahúsinu á Sauðárkróki laugardaginn 27. maí síðastliðinn að viðstöddu fjölmenni.  Alls brautskráðust 75 nemendur frá skólanum.  Alls hafa 2.490 nemendur brautskráðst frá skólanum frá upphafi skólahalds haustið 1979.

Kristján Bjarni Halldórsson, flutti vetrarannál skólans þar sem stiklað var á stóru í starfsemi hans. Þar kom meðal annars fram að við skólann starfa 65 manns.  Þá munu þeir Björn Magnússon, sem starfað hefur við skólann í 35 ár og Eric Fissers sem starfað hefur við skólann í 21 ár láta af störfum vegna aldurs.

Brautskráningar eftir námsbrautum:

Stúdentsprófsbrautir: 37
Framhaldsskólabraut í kvikmyndagerð: 2
Húsasmíði og húsgagnasmíði: 12
Nýsköpunarbraut: 1
Rafiðna og bílgreinadeild: 8
Sjúkraliðabraut: 3
Starfsbraut: 2
Vélvirkjun og vélstjórn: 8
Viðbótarnám til stúdentsprófs: 2
Viðskipta- og hagfræðibraut: 8
Viðbótarnám til stúdentsprófs: 6

Eftirtaldir nemendur fengu viðurkenningar:

Verðlaunaveitingar vorið 2017

Bríet Lilja Sigurðardóttir hlaut viðurkenningu fyrir framúrskarandi alhliða námsárangur á stúdentsprófi félagsfræðabrautar.

Benedikt Geir Sveinbjörnsson hlaut viðurkenningu fyrir framúrskarandi námsárangur í sérgreinum í  húsamíði og húsgagnasmíði.

Magnús Freyr Gíslason hlaut viðurkenningu fyrir framúrskarandi námsárangur í sérgreinum í  húsgagnasmíði.

Þröstur Kárason hlaut viðurkenningu fyrir framúrskarandi námsárangur í sérgreinum í húsasmíði.

Hann hlaut einnig viðurkenningu fyrir framúrskarandi  árangur á Íslandsmóti iðn- og verkgreina.

Bergrún Sóla Áskelsdóttir hlaut viðurkenningu fyrir framúrskarandi námsárangur í íslensku á stúdentsprófi málabrautar.

Hún hlýtur einnig viðurkenningu fyrir framúrskarandi námsárangur í ensku á stúdentsprófi málabrautar.

Jónas Már Kristjánsson hlaut viðurkenningu fyrir framúrskarandi námsárangur í sérgreinum náttúrufræðibrautar á stúdentsprófi.

Hann hlaut einnig viðurkenningu frá Háskólanum í Reykjavík fyrir framúrskarandi námsárangur í raungreinum á stúdentsprófi náttúrufræðibrautar.

Þá hlaut hann viðurkenningu frá Íslenska stærðfræðafélaginu fyrir framúrskarandi námsárangur í stærðfræði á stúdentsprófi náttúrufræðibrautar.

Að lokum hlaut hann viðurkenningu frá Landlæknisembættinu  fyrir framlag sitt til heilsueflandi skóla.

Mikael Snær Gíslason hlaut viðurkenningu fyrir framúrskarandi námsárangur í ensku á stúdentsprófi.

Einnig hlaut hann viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur í Landskeppni framhaldsskólanna í líffræði.

Sunna Þórarinsdóttir hlaut viðurkenningu fyrir framúrskarandi alhliða námsárangur á stúdentsprófi náttúrufræðibrautar.

Hún hlaut einnig viðurkenningu fyrir framúrskarandi námsárangur í íslensku á stúdentsprófi.

Loks hlaut hún hún viðurkenningu frá Danska sendiráðinu fyrir framúrskarandi námsárangur í dönsku á stúdentsprófi.

Hákon Ingi Stefánsson hlaut viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur á Íslandsmóti iðn- og verkgreina.

Elísa Ósk Ómarsdóttir fékk gjöf frá Gideonfélaginu á Íslandi, Sjúkraliðafélagi Íslands og Sjúkraliðadeildinni á Norðurlandi vestra.

Eva Rós Gunnarsdóttir  fékk gjöf frá Gideonfélaginu á Íslandi, Sjúkraliðafélagi Íslands og  Sjúkraliðadeildinni á Norðurlandi vestra.

Gunnhildur Dís Gunnarsdóttir fékk gjöf frá Gideonfélaginu á Íslandi, Sjúkraliðafélagi Íslands og  Sjúkraliðadeildinni á Norðurlandi vestra.

 Sara B. Gröndal fékk gjöf frá Gideonfélaginu á Íslandi, Sjúkraliðafélagi Íslands og  Sjúkraliðadeildinni á Norðurlandi vestra.

Haukur Hafliði Björnsson hlaut viðurkenningu fyrir framúrskarandi ástundun og vinnusemi í námi sínu á starfsbraut.

María Ósk Ólafsdóttir hlaut viðurkenningu fyrir framúrskarandi ástundun og vinnusemi í námi sínu á starfsbraut.

Haukur Ingvi Marinósson  hlaut viðurkenning fyrir framúrskarandi námsárangur í sérgreinum  vélstjórnarbrautar A.

Sigurður Hannes Sigurðsson  hlaut viðurkenningu fyrir framúrskarandi námsárangur í sérgreinum vélstjórnarbrautar A.

Elín Sveinsdóttir hlaut viðurkenningu fyrir framúrskarandi alhliða námsárangur  á stúdentsprófi viðskipta- og hagfræðibrautar.

Hún hlýtur einnig viðurkenningu frá Lionsklúbbi Sauðárkróks úr Minningarsjóði Tómasar Hallgrímssonar fyrir framúrskarandi námsárangur á viðskipta- og hagfræðibraut á stúdentsprófi.

Þá hlaut hún viðurkenningu fyrir framúrskarandi námsárangur í íslensku á stúdentsprófi.

Að lokum hlaut hún viðurkenningu frá Danska sendiráðinu fyrir framúrskarandi námsárangur í dönsku á stúdentsprófi.

Hrafnhildur Ósk Halldórsdóttir hlaut viðurkenningu fyrir framúrskarandi námsárangur í sérgreinum viðskipta- og hagfræðibrautar.

Iðunn Helgadóttir hlaut viðurkenningu fyrir framúrskarandi námsárangur í sérgreinum viðskipta- og hagfræðibrautar á stúdentsprófi.

Hún hlaut einnig viðurkenningu frá Þýska sendiráðinu fyrir framúrskarandi námsárangur í þýsku á stúdentsprófi.

Loks hlaut hún viðurkenning og þakkir fyrir framúrskarandi störf á vettvangi félagsmála nemenda, forystu fyrir Nemendafélag FNV og alla  framgöngu á vettvangi skólastarfs.

Heimild: fnv.is