Fjallabyggð hefur móttekið 7 umsóknir sem bárust í störf sem auglýst voru á skíðasvæðinu í Skarðsdal á Siglufirði fyrir rekstur á svæðinu í vetur, en auglýst var eftir umsóknum í starf umsjónarmanns svæðisins, í starf almenns starfsmanns og starf tveggja starfsmanna til vinnu á snjótroðurum og undirbúningi svæðis.

Ein umsókn barst í starf umsjónarmanns svæðisins, þrjár umsóknir bárust í starf almenns starfsmanns og þrjár umsóknir bárust í starf á snjótroðurum.