Í ársskýrslu Menntaskólans á Tröllaskaga kemur fram að brottfall nemenda árið 2013 hafi verið aðeins 6,9%. Brottfall, skilgreint sem munur á nemendum sem hefja nám og þeim sem skila sér til prófs.  Þetta er mjög lág tala miðað við það sem algengt er í öðrum framhaldsskólum. Meðtaldir eru fjarnemar sem eru í sömu námshópum og dagskólanemar.

Í ársskýrslu Menntaskólans á Tröllaskaga fyrir árið 2013 kemur fram að 179 nemendur voru skráðir á haustönn en 173 á vorönn. Í dagskóla voru um 130 nemendur á hvorri önn. Þrír af hverjum fjórum nemendum bjuggu í Fjallabyggð, 10% í Dalvíkurbyggð en 17% á öðrum stöðum. Á félags- og hugvísindabraut voru 55 nemar á vorönn en 45 á haustönn. Á listabraut voru 45 á vorönn en 31 á haustönn. Á náttúruvísindabraut var 31 á vorönn en 35 á haustönn. Á starfsbraut voru 8 nemar á vorönn en 12 á haustönn. Nemar í 10. bekk sem tóku áfanga á vorönn voru 11 en 15 gerðu það á haustönn.

Heimild: mtr.is