Alls bárust 57 tillögur að nafni á fjarvinnusetri í Hrísey frá 35 einstaklingum þegar leitað var eftir hugmyndum. Fyrir valinu varð „Fjarbúðin“ en tvö stungu upp á því heiti; þau Hallgrímur Helgason rithöfundur og Anna Guðmundsdóttir.

Ýmsar skemmtilegar skýringar bárust á tillögunum en vinningstillagan felur í sér skírskotun til bæði fjarbúðar sambúðarfólks og einnig til verbúðar.