Í lok desember voru liðlega sjöhundruð manns á atvinnuleysisskrá á Norðurlandi eystra. Flestir eru búsettir á Akureyri, 449 manns.  Á Dalvík voru á sama tíma 66 íbúar án atvinnu og 44 íbúar í Fjallabyggð, 25 karlar og 19 konur.

285 karlar voru að jafnaði án atvinnu á Norðurlandi eystra á árinu 2012 og 306 konur. Þetta kemur fram í tölum Vinnumálastofnunar. Flestir voru á atvinnuleysisskrá í janúar, febrúar og mars, hátt í áttahundruð manns í hverjum mánuði.

Alla skýrsluna má lesa hér.

Heimild: vikudagur.is