4. flokkur kvenna hjá KF/Dalvík fór til Finnlands í júlí til að taka þátt í Helsinki Cup dagana 6.-11. júlí. Mótið er stórt en yfir 1700 lið frá 18 löndum taka þátt og eru 18 knattspyrnuvellir notaðir fyrir mótið. 9 lið frá Íslandi tóku þátt í mótinu í ár en KF/Dalvík var eina liðið frá Norðurlandi. 16 stelpur frá KF/Dalvík, ásamt þjálfara, farastjórum og foreldrum áttu frábæra daga á þessu stóra móti. Liðið lék 5 leiki á mótinu gegn sterkum liðum frá Finnlandi, Svíþjóð og Spáni. Fjórir leikir voru í riðlinum og svo síðasti leikurinn í útsláttarkeppni.
Fyrsta daginn lék liðið tvo leiki, einn gegn liðinu RCD Espanyol knattspyrnuskólanum í Helsinki. Leikið var í 2×20 mínútur og vann RCD leikinn 0-3. Stutt var á milli leiki og var næst leikur gegn sænska liðinu Sollentuna SFK. Þær sænsku unnu leikinn 2-1.
Næsta dag var leikið eldsnemma gegn finnskum stelpum í HJK og var það mjög þungur leikur gegn sterku liði og endaði leikurinn 9-0 fyrir HJK, en liðið vann alla sína leiki í riðlinum, skoruðu 26 mörk og fengu ekkert á sig. Það segir tölvert um styrkleika liðsins.
Fimmtudaginn 9. júlí aftur morgunleikur gegn finnsku liði, núna Espoon Palloseuran eða EPS sem er stórt liðið í Finnlandi. EPS vann leikinn 0-5, en liðið tapaði aðeins einum leik í þessum B-riðli.
Á síðasta keppnisdeginum lék liðið gegn finnska Nummela Palloseura , eða NuPS.  Nú var riðlakeppninni lokið og útsláttur hafinn. Leikurinn hófst kl. 8 á morgni til og var mikill markaleikur og jafn. Lokatölur leiksins urðu 5-4 fyrir NuPS.
Dýrmæt reynsla fyrir liðið og ógleymanlegar minningar frá svona ferðalagi. Liðið lék í glæsilegum bleikum búningum sem voru sérstaklega gerðir fyrir mótið.