Smitum hefur fjölgað nokkuð í umdæmi lögreglustjórans á Norðurlandi eystra í vikunni og enn er óvíst hvort tekist hafi að ná utan um þá hópa sem þeim tengjast og hefta útbreiðslu. Nú eru 38 í einangrun og 99 í sóttkví. Langflest tilfelli á Norðurlandi eru á Akureyrarsvæðinu.
Stök smit eru að greinast úti í samfélaginu þar sem óljóst er með tengingar við önnur smit. Lögreglan hefur þurft að hafa afskipti af smituðum einstaklingum og fólki sem á að vera í sóttkví. Farsóttarhús hefur verið opnað á ný á Akureyri.
Aðgerðastjórn vill beina því til íbúa umdæmisins að gæta að eigin sóttvörnum. Þvo og spritta hendur, halda 2 metra fjarlægð við ótengda aðila og takmarka samneyti við fólk eins og kostur er.