Við Síldarminjasafnið
Enn eitt árið var metaðsókn að Síldarminjasafninu á Siglufirði.  Heildarfjöldi safngesta var 35.000 á árinu 2023 og hlutfall erlendra gesta rúmlega 70%. Síldarsaltanir á planinu við Róaldsbrakka voru 62 og leiðsagnir um safnið rúmlega 550.
Móttaka gesta og miðlun sögunnar er veigamikill þáttur í rekstri safnsins. Þá nýtast vetrarmánuðirnir til rannsókna, umsóknar- og skýrsluskrifa, áframhaldandi vinnu við ljósmyndakostinn sem er ansi umfangsmikill og ýmisskonar samstarfs, innanlands- og utan.
Safnið og starfsmenn þess leggja sig fram til að bjóða upp á fjölbreytta viðburði fyrir gesti úr nærsamfélaginu allan ársins hring.
Þá er uppbygging á Salthúsinu að þokast í rétt átt og nær því að verða tilbúið.
Þetta kemur fram í pistli frá safnstjóra safnsins á loka degi ársins 2023.
Síldarsöltun