Í dag komu 330 gestir á Skíðasvæðið í Skarðsdal á Siglufirði í ágætis skíðaveðri. Lítilsháttar él var á svæðinu og alskýjað og eins stiga hiti. Færið var gott að vanda, unnið harðfenni.
Mikið var um að vera í Skarðsdalnum í dag en þar var samæfing alpagreinabarna frá Mývatni, Akureyri, Dalvík, Ólafsfirði, Siglufirði og Sauðárkróki. Hundabjörgunaræfing Landsbjargar fór einnig fram við Skíðaskálann í Skarðsdal.