Ársskýrsla Slökkviliðs Fjallabyggðar er nú komin út. Þar kemur fram að starf Slökkviliðsins gekk vel á árinu 2024.

28 útköll og verkefni eru skráð í miðlægum grunni Neyðarlínunnar og Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar og er það utan annarra verkefna sem komu beint inn á borð slökkviliðs.

Haldnar voru níu æfingar þar sem slökkviliðsmenn Fjallabyggðar æfðu viðbrögð við hinum ýmsu verkefnum sem upp geta komið.

Í byrjun árs voru 28 virkir slökkviliðsmenn í Slökkviliði Fjallabyggðar auk slökkviliðsstjóra og varaslökkviliðsstjóra. Tólf á Siglufirði og sextán á Ólafsfirði. Fyrirséð er að taka þarf inn tvo til þrjá nýliða inn í liðið á árinu 2025 þar sem nokkrir innan liðsins hafa óskað að draga sig úr starfi sökum aldurs.

Að minnsta kosti 124 eldvarnarskoðanir eru á áætlun á árinu 2025.

Helsta áskorunin er að fá einstaklinga með aukin ökuréttindi sem og vinnuvélaréttindi. Önnur slökkvilið hafa gert samning við
slökkviliðsmenn á þá leið að sveitarfélag greiðir þriðjung af náminu, þriðjungur er sóttur til stéttarfélags í gegnum styrk og þriðjungur dregin af launum slökkviliðsmanna í ákveðinn tíma. Slökkviliðsstjóri telur að sú leið sé vænlegust og var hún farin í samvinnu við tvo slökkviliðsmenn á síðasta ári.

Helstu útköll ársins 2024:

Af þeim útköllum sem Slökkvilið Fjallabyggðar sinnti á síðasta ári eru nokkur sem skera sig úr er varða
eðli og umfang.

13. febrúar – Eldur í snjótroðara í Burstabrekkudal.
Slökkvilið fékk tilkynningu um eldur logaði í snjótroðara í Burstabrekkudal. Ljóst var strax í upphafi að erfitt
yrði fyrir slökkvilið að komast á vettvang. Var brugðið á það ráð að ferja slökkviliðsmenn með slökkvitæki
og búnað á vettvang á snjósleðum og öðrum snjótroðara.

29. mars – Umferðarslys við flugvöllinn á Siglufirði
Slökkvilið fékk tilkynningu um umferðarslys við flugvöllinn á Siglufirði þar sem tvær bifreiðar hefðu lent
saman. Þrír voru fluttir á slysadeild til aðhlynningar.

14. júlí – Rútuslys á Öxnadalsheiði – Hópslysaáætlun virkjuð
Slökkvilið fékk tilkynningu um alvarlegt umferðarslys á Öxnadalsheiði þar sem rúta hafði farið útaf og oltið.
Tvö ökutæki voru send með mannskap á vettvang til aðstoðar.

20. ágúst – Eldur í húsi við Norðurgötu
Mikið viðbragð var virkjað þegar eldur kom upp á trésmíðaverkstæði á Siglufirði. Ljóst er að vegna
viðbragða starfsmanna á staðnum og viðbragðs slökkviliðs var komið í veg fyrir mikið tjón.

23. ágúst – Hamfararigning á Siglufirði
Umfangsmesta útkall slökkviliðsins á síðasta ári var þegar hamfararigning var. Mikið var um stór og
tímafrek dæluverkefni sem stóðu yfir í næstum tvo daga.

Æfingar ársins 2024:

 Janúar – Farið yfir búnað allra ökutækja, vinnukvöld á slökkvistöð
 Febrúar – Reykköfun og fjöldabjörgun
 Mars – Vatnsöflun í Ólafsfirði
 Apríl – Snjóflóðaæfing í samvinnu við almannavarnir
 Maí – Reykköfun
 September – Yfirferð búnaðar og bifreiða
 Október – Reykköfun og körfubifreið
 Nóvember – Reykköfun
 Desember – Reykköfun