Innritun nýnema í framhaldsskóla landsins er lokið og var aðsókn mjög góð. Alls innrituðust 270 nýnemar í Verkmenntaskólann á Akureyri og einnig hafa nú þegar innritast 94 eldri nemendur.

Skrifstofa VMA er lokuð frá 19. júní til 4. ágúst.

Dagskrá fyrir nýnema verður 17. ágúst kl 10:30 mæting er í Gryfjuna þar sem nemendum verður skipt niður í hópa eftir umsjónarkennurum. Þar á eftir verður grillað og hópefli. Mikilvægt er að allir nýnemar mæti. Foreldrum og forráðamönnum er velkomið að koma með nemendum.

Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá 18. ágúst.