Í Ferðamáladeild Háskólans á Hólum hefur árum saman verið kennd viðburðastjórnun og hafa vinsældir námsins aukist ár frá ári. Í haust hófu 27 nemendur námið í skólanum.
Meðal þess sem nemar gera er að fara í verknám til viðburðafyrirtækja og einstakra viðburða í náminu er mikil áhersla á að nemendur læri með því að framkvæma viðburði. Allt námið fer fram í fjarkennslu með lotum á Hólum, sem gerir nemendum um allt land og jafnvel erlendis kleift að stunda námið.
Þeir nemendur sem hófu nám í haust hafa á undanförnum vikum staðið fyrir fjölbreyttum viðburðum um allt land þar sem þau hafa lært með því að prófa sig áfram við skipulag og framkvæmd alvöru viðburða.
Nemendur í árganginum bjuggu til Styrktarbingó hjá Samtökunum 78, Pop-Up viðburður hjá fótboltastelpum, listviðburður á leikskóla, matarviðburðir, hópeflisviðburðir auk þess sem tveir viðburðir voru skipulagðir á dvalarheimilum í Reykjavík.