Nemendur í Grunnskóla Fjallabyggðar eru 214 í haust og skiptast nánast jafnt á milli skólahúsanna á Siglufirði og Ólafsfirði. Þá eru sautján nýnemar í 1. bekk grunnskólans. Skólasetning verður 24. ágúst kl. 10-11 á yngra stigi og kl. 13-14 á eldra stigi. 1. bekkingar verða boðaðir sérstaklega til skólans.

Grunnskóli Fjallabyggðar innleiðir nýtt skólakerfi í haust, en það heitir Námsfús og kemur í stað Mentors sem foreldrar þekkja vel. Koma þarf öllum gögnum inn í nýtt kerfi og þurfa kennarar tíma til að læra á Námsfús.

Þá verður innleitt nýtt námsmat í skólann í haust samkvæmt ákvörðun mennta- og barnamálaráðherra.

Heillaspor verður innleitt í skólastarfið í vetur.

Heillaspor (e.Nurture) er heildræn nálgun til að styðja við farsæla þátttöku barna í inngildandi skóla- og frístundastarfi. Umgjörð Heillaspora byggir á leiðum til að skapa tengslamiðað og öruggt skólasamfélag þar sem börn njóta velferðar, taka virkan þátt, þroska sína innri hæfileika og styrkja stöðu sína í námi. Þegar börn upplifa öryggi og tengsl í skólanum verða þau líklegri til að tjá sig og segja frá því sem þau raunverulega þurfa á að halda, sérstaklega þau sem búa við félagslegar eða efnahagslegar áskoranir.