Sextán kennarar og þroskaþjálfi Menntaskólans á Tröllaskaga er nú á endurmenntunarnámskeiði á Tenerife. Megin viðfangsefni námskeiðsins er streita, að læra að þekkja streituvalda og að tileinka sér aðferðir til að vinna bug á þeim sem svo aftur minnkar hættuna á kulnun í starfi.
Þetta er vikunámskeið sem styrkt er af Erasmus+ og er frá 9-15. Mestmegnis inni i skólastofu en einnig er farið út i góða veðrið til að æfa slökun og núvitund sem eru einmitt gagnleg tæki til að vinna gegn streitu.
Heimsfaraldurinn síðustu tvö ár hefur reynt mikið á og þetta er því gott veganesti inn i framtíðina. Það er ekki síst samveran sem er gagnleg og langþráð þvi kennarar skólans eru samhentur hópur sem ekki hafa haft tækifæri á að vera öll saman síðustu misseri. Það verða því endurnært og afslappað starfsfólk sem mæta til vinnu eftir sumarfrí.
Heimild: mtr.is,
Myndir: ÞH, MTR, Olga.