Ofanflóðahættumat fyrir Siglufjörð hefur verið endurskoðað eftir byggingu stoðvirkja í Hafnarfjalli og varnargarða í hlíðarfætinum fyrir ofan endilangan bæinn, sem draga mikið úr snjóflóðahættu í byggðinni. Stoðvirki á upptakasvæðum sem reist voru á árunum 2004 til 2024 minnka líkur á að snjóflóð fari af stað úr upptakasvæðum í Hafnarfjalli og sunnanverðum Gróuskarðshnjúki.
Leiðigarðarnir Stóri- og Litli-Boli verja innsta hluta bæjarins með því að beina snjóflóðum úr Jörundarskál og Strengsgiljum suður fyrir byggðina. Þvergarðar frá Skriðulækjargiljum til Gróuskarðshnjúks og leiðigarðurinn Kálfur norðan bæjarins verja svo byggðina gagnvart flóðum sem kunna að falla úr upptakasvæðum neðan stoðvirkjanna og úr gili í norðanverðum Gróuskarðshjúki.
Hættumat fyrir suðurhluta bæjarins var endurskoðað að teknu tilliti til leiðigarðanna Stóra- og Litla-Bola árið 2002. Líkanreikningar með nýjum þrívíðum snjóflóðalíkönum benda til þess að hætta á að mjög stór snjóflóð flæði yfir leiðigarðana sé meiri en gert var ráð fyrir í endurskoðuða hættumatinu.
Hættumatið fyrir suðurbæinn er nú endurskoðað að nýju og skilgreind C- og B-svæði undir leiðigörðunum þar sem áður var A svæði. Hættumatslína C í suðurbænum færist við endurskoðunina niður um þrjár húsaraðir þannig að 16 íbúðarhús lenda á C-svæði. Hættumatslína B færist einnig niður og lenda 10 íbúðarhús á B-svæði. A-lína í endurskoðuðu hættumati nær u.þ.b. til C-svæðis skv. upprunalegu hættumati án varnarvirkja, og tekur það til yfir 30 íbúðarhúsa undir leiðigörðunum. Endurskoða þarf frumathugun og kanna möguleika á að endurbæta ofanflóðavarnir fyrir suðurbæinn vegna hættu á yfirflæði í framhaldi af þessu hættumati.
Hættumatslínur C og B undir Hafnarhyrnu og Gimbraklettum færast í aðalatriðum upp fyrir byggðina með tilkomu varnarvirkjanna, en hættumatslína A fylgir aðmestu leyti Suðurgötu og Hvanneyrarvegi, u.þ.b. þar sem C-lína lá skv. upprunalegu hættumati án varnarvirkja. Færsla C-línu er um 300 m þar sem mest er undir Fífladölum og B-línu um 350 m. Með tilkomu varnanna þar verða engin íbúðarhús á C-svæði, fjögur íbúðarhús B-svæði og 150–200 hús á
A-svæði. Hættumatslínur C og B undir Gróuskarðasnjúki færast einnig upp fyrir byggðina með tilkomu stoðvirkja og varnargarðanna Bakkarípils og Kálfs, og hættumatslína A fylgir C-línu upprunalegs hættumats án varnarvirkja. Undir Hvanneyrarskál og við Hvanneyrará eru 11 íbúðarhús á B-svæði í hinu endurskoðaða mati og 15 hús á A-svæði. Undir
Gróuskarðshnjúki er ekkert hús á C-svæði, eitt hús á B-svæði og 27 hús á A-svæði í endurskoðaða matinu.
Rýmingaráætlun fyrir Siglufjörð hefur verið endurskoðuð til samræmis við nýja hættumatið. Til greina kemur að fyrsta stig viðbúnaðar verði að lýsa yfir hættustigi og senda þau tilmæli til íbúa að þeir dveljist ekki í herbergjum með glugga eða dyraop sem snúa upp í hliðina. Jafnframt verði gætt varúðar í sambandi við umferð að og frá húsum á
reitunum.
Líkanreikningar gefa til kynna að langskreið snjóflóð geti náð fram úr Hvanneyrarskál og skapað hættu í byggð undir skálinni. Rannsaka þarf snjóflóðahættu undir Hvanneyrarskál og kanna hvort tilefni er til þess að breyta hættumati þar.
Flóðbylgjur af völdum snjóflóða úr Skollaskál austan fjarðarins hafa valdið tjóni á Siglufjarðareyri en ekki mannskaða. Tilefni er til þess að rannsaka flóðbylgjuhættuna á Siglufirði nánar, m.a. með líkanreikningum á því hvernig flóðbylgjur berast yfir fjörðinn.
Þó ekki sé talin ástæða til þess að láta flóðbylgjuhættuna hafa áhrif á hættumatslínur, er rétt að taka tillit til þessara hættu í áætlun um viðbúnað til þess tryggja öryggi íbúa þegar snjóflóðahætta kemur upp, m.a. benda fólki á að hafa varann á þegar farið er um þar sem flóðbylgjur geta skapað hættu.
