Mótaskrá Golfklúbbs Fjallabyggðar hefur verið birt og hefst golfvertíðin í Ólafsfirði í júní á Skeggjabrekkuvelli. Vikulega mótaröðin sem nefnist Cutter & Buck hefst 18. júní og verður vikulega á miðvikudögum í sumar eða alls 10 mót. Næsta mót er svo golfmótið Brimsalir 21. júní, en það er Texas Scramble mót. Alls eru fjögur mót í júní auk byrjun meistaramóts.
Önnur mót eru Minningarmót GFB sem verður 4. ágúst. Opna Ísfélagsmótið verður 17. ágúst og Kvennamót GFB 30. ágúst. Tímabilið endar svo með Bændaglímu 6. september.
Greint verður frá úrslitum helstu móta hjá GFB í sumar hér á síðunni eins og undanfarin ár.