Það voru tólf sprækir Björgunarsveitarmenn úr Tindi sem voru að sinna málum í nótt og morgun í Ólafsfirði. Mikið hvassviðri var og nokkur verkefni í gangi sem sveitin leysti vel. Lára Stefánsdóttir skólastjóri hjá Menntaskólanum í Tröllaskaga vann með Svæðisstjórn.

Rauð viðvörun er í gildi á Norðurlandi til kl. 16:00 í dag.

Tölverð úrkoma hefur verið í Fjallabyggð og fóru hviðurnar í Ólafsfirði í nótt upp í 40 m/s.