Um síðustu helgina fór fram Reykjavíkurmót Unglinga í TBR húsinu í Laugardalnum. Um 150 iðkendur þátt í mótinu og voru 11 iðkendur frá TBS sem tóku þátt og stóðu sig mjög vel. Keppt var í einliðaleik á laugardeginum og tvenndarleik á sunnudeginum. Næsta mót er Meistaramót Aftureldingar sem fram fer um komandi helgi en síðan fer Unglingamót TBS fram fyrstu helgina í október.
Hér að neðan má sjá árangur TBS iðkendanna:
Sebastían varð í 3.sæti í einliðaleik í U17 A.
Kamilla og Marínó sigruðu tvöfald, þ.e. í einliðaleik í U15 A og tvenndarleik í U15 A.
Adríana varð í 4 sæti í einliðaleik í U15 A og 3.sæti í tvenndarleik í U15 A með Kára frá BH.
Björgvin varð í 3.sæti í einliðaleik í U13 A og Guðjón í 4.sæti.
Viktor varð í 3.sæti í einliðaleik í U13 B og Friðrik í 3.sæti í U13 C.
Guðrún varð í 2.sæti í einliðaleik í U13 A.
Elena varð í 1.sæti í einliðaleik í U13 B og Katrín í 2.sæti.
Björgvin og Guðrún urðu í 2.sæti í tvenndarleik í U13 A og Guðjón og Elena í 3.sæti.
Viktor og Katrín urðu í 2.sæti í tvenndarleik í U13 B.