Alls eru 108 börn Leikskóla Fjallabyggðar í vetur. Elsti hópurinn í leikskólanum í Ólafsfirði hefur aðsetur á Tröllahóli sem er í nýbyggingunni. Bæta þarf starfsmannaaðstöðu á Leikhólum í Ólafsfirði, en hún er mjög lítil.

Búið er að ráða í allar stöður hjá Leikskóla Fjallabyggðar fyrir veturinn, á Leikhólum eru 14 stöður en 18 starfsmenn en á Leikskálum Siglufirði eru 15 stöðugildi en 17 starfsmenn.

23 börn nýta sér styttri vistun. Breyting hefur orðið á vistunartíma sem er orðinn sveigjanlegri.

Verið er að vinna að nýjum námsvísi með aðstoð Ásgarðs, ráðgjafa í skólaþjónustu, sem verður kynntur í september. Áhersla er lögð á þemavinnu. Einn starfsmaður verður m.a. með söngstund fyrir hverja deild í hverri viku.