Alls eru 107 nemendur nú skráðir í Leikskóla Fjallabyggðar og munu tólf nemendur bætast við í vetur. Samtals verða 119 nemendur í skólanum undir lok vetrar. Nú er 41 nemandi á Leikhólum í Ólafsfirði og 66 nemendur á Leikskálum á Siglufirði.
Þá er búið að ráða í allar stöður Leikskóla Fjallabyggðar.
Fjallabyggð styður starfsmenn Leikskóla Fjallabyggðar til náms í leikskólafræðum og eru fjórir starfsmenn í slíku námi.
Kristín María Hlökk Karlsdóttir er nýr skólastjóri Leikskóla Fjallabyggðar.